Suivez-nous
Flöskupúkinn
EAN13
9788728038567
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Collection
Grimmsævintýri
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Flöskupúkinn

SAGA Egmont

Grimmsævintýri

Livre numérique

  • Aide EAN13 : 9788728036594
    • Fichier EPUB, avec Marquage en filigrane
    0.99

  • Aide EAN13 : 9788728038567
    • Fichier MP3, libre d'utilisation
    0.99
Einu sinni var fátækur viðarhöggsmaður sem átti einn son. Viðarhöggsmaðurinn
átti sér þá ósk að pilturinn fengi góða og þarfa menntun svo hann gæti séð
fyrir föður sínum í ellinni. Pilturinn fer í menntaskóla en tekst ekki að
ljúka námi vegna fjárskorts og snýr því heim aftur. Dag einn þegar feðgarnir
eru úti í skógi að höggva eldivið, ráfar pilturinn lengra inn í skóginn. Undir
stóru eikartré finnur hann litla glerflösku og inni í flöskunni er skrýtið
kvikyndi sem talar. Kvikyndið, sem líkist froski, biður piltinn um að hjálpa
sér út úr flöskunni. Þegar pilturinn tekur tappann úr flöskunni flýgur upp úr
henni undarleg vera og ekki var hún frýnileg. Nú var úr vöndu að ráða fyrir
piltinn sem mátti beita kænsku sinni og visku til að skáka púkanum sem kom upp
úr flöskunni. Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda
verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið
töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap
sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu
Ævintýri Grimmsbræðra. Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir
voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist
heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19.
öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra
ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
S'identifier pour envoyer des commentaires.